Arndís Ýr Hafþórsdóttir úr Fjölni vann gullverðlaun í 10 km hlaupi kvenna á Smáþjóðaleikunum í dag. Arndís sem hefur lengi verið einn öflugasti hlaupari landsins hljóp á virkilega fínum tíma eða 36:59. Þetta afrek á eflaust eftir að hvetja Arndísi enn frekar til dáða en hún hefur verið illviðráðanleg í þeim hlaupum sem hún hefur verið þátttakandi í upp á síðkastið. Hlaup.is óskar Arndísi innilega til hamingju með gullið.
birt 01. júní 2017