Viðurkenning Arndísar fyrir fyrsta sætið.Arndís Ýr Hafþórsdóttir, hlaupari úr Fjölni bar sigur úr býtum í Nike Marathontest, 10 km götuhlaupi sem fram fór í Kaupmannahöfn nú um helgina. Arndís Ýr kom í mark á 36:12, sem er 43 sekúndna bæting á hennar besta tíma frá árinu 2012.Arndís var virkilega ánægð með árangurinn þegar hlaup.is heyrði í henni eftir hlaupið. "Mig langaði að bæta mig en þar sem ég er að æfa mjög mikið um þessar mundir þá er mjög gaman að sjá jafn mikla bætingu og varð raunin. Þetta hlaup eykur klárleg trú mína á að ná mínum markmiðum fyrir HM í hálfmaraþoni, en þar stefni ég góða bætingu," sagði þessi mikla afrekskona sem býr í Kaupmannahöfn þar sem hún er í háskólanámi.Nike Marathonthest samanstendur af þremur hlaupum sem fara fram fyrir Kaupmannahafnarmaraþonið sem er 18 maí næstkomandi. Hlaupin þrjú fara fram í miðborg Kaupamannahafnar og er hluti af undirbúningi margra hlaupara fyrir hið stóra maraþon.
Hlaup.is tók ítarlegt viðtal við Arndísi skömmu fyrir jól sem sjá má hér.