Laugardaginn 10. mars næstkomandi fer fram í Reykjavík ASCA hlaup flugfélaga í Evrópu. Undirbúningur hefur staðið yfir lengi og mun framkvæmd hlaupsins vera í samstarfi við ÍR.
Hlaupið fer fram í Öskjuhlíðinni og hlaupinn verður 1,8 km hringur sem gerir hlaupið skemmtilegt á að horfa. Eftirfarandi flugfélög hafa skráð lið til keppni:
- Aer Lingus
- Austrian Airlines
- British Airways
- Iberia
- Icelandair
- Lufthansa
- SAS
- Cargolux
Fyrir hönd Icelandir keppa:
Karlar
- Dagur Egonsson
- Klemenz Sæmundsson
- Baldur Haraldsson
- Guðni Ingólfsson
- Sigurgeir Guðbjörnsson
- Ólafur Briem
- Ágúst Jóel Magnússon
- Sigurgeir Már Halldórsson
Konur
- Huld Konráðsdóttir
- Sigrún Birna Norðfjörð
- Anna Dís Sveinbjörnsdóttir
- Bryndís Magnúsdóttir
Konurnar er ræstar 10:30 og karlarnir síðan strax á eftir eða 11:00. Skokkhópur Icelandair hvetur alla til að koma og horfa á spennandi keppni.