Í ár ætlar hlaup.is að vera með jóladagatal með „molum" frá hlaupurum hér á landi. Frá 1. desember og fram til jóla mun birtast einn „moli" á dag á hlaup.is, sem mun innihalda hlaupatengt góðgæti. Hugmyndin er að þið, lesendur hlaup.is sendið inn ykkar „mola" til birtingar í jóladagatali hlaup.is.
Í „molanum" þarf ekki að felast heilagur sannleikur eða vísindalegar staðreyndir, jóladagatalið er fyrst og fremst til gamans og vonandi einnig til gagns í mörgum tilfellum. Því biðlar hlaup.is til lesenda að búa til einn skemmtilegan mola og senda á heimir@hlaup.is. Molinn þarf alls ekki að vera langur, þess vegna örfáar setningar. Höfundar fá að miklu leyti frjáls efnistök að því marki að tengingin við hlaup þarf að vera fyrir hendi.
Hugmyndir að molum:
- Ráð eða ábendingar er varðar æfingar, meiðsl, búnað, keppni og næringu svo eitthvað sé nefnt.
- „Uppálds-"-æfing, - almenningshlaup, -hlaupaleið, -skór, -klæðnaður, -app.........
- Ráð vegna meiðsla og fyrirbyggjandi æfingar
- Ábendingar um blogg, snapchat, instagram, fésbókarsíður...
- Kostir við hlaup; andlega vellíðan, líkamleg vellíðan, félagslega hliðin, einveran, íhugun...
- „Leyndar perlur" fyrir hlaupara eða önnur hlaupatengd „leyndarmál" sem hlauparar eiga
Hlaup.is ítrekar að jóladagatalið á fyrst og fremst að vera til skemmtunar og að skrifa molann á ekki að verða mikill höfuðverkur, sleppið ímyndaraflinu lausu í nokkrar línur og setjið ykkar mark á hlaup.is. Molarnir verða að sjálfsögðu merktir höfundi nema sérstaklega sé beðist undan því.
Eðli málsins samkvæmt væri best að fá innsenda mola sem fyrst enda 1. desember skammt undan. Hlaup.is skorar á hlaupara landsins rífa upp pennann og sýna samtakamátt íslenska hlaupasamfélagsins í verki.
Mola skal senda á heimir@hlaup.is.