Ásta Kristín Parker tilnefnd sem hlaupari ársins 2017

birt 14. janúar 2018

Ásta Kristín Parker er tilnefnd sem langhlaupari ársins 2017 á hlaup.is. Í níunda skiptið stendur hlaup.is fyrir vali á langhlaupara ársins, bæði í karla- og kvennaflokki. Þá er einkum verið að horfa til afreka í götu- og utanvegahlaupum eða annarri keppni í langhlaupum. Afrek er afstætt, getur verið góður tími miðað við aldur, óvenjulegt verkefni, þrautseigja og kjarkur eða hvaðeina sem hægt er að meta til viðurkenningar.

Ásta Kristín Parker (46 ára) keppti í maraþoni RM á árunum 2011-2013 og var þá að hlaupa á 3:44-3:58. Árið 2015 bárust þær fréttir að hún hefði  sigrað í maraþonhlaupi í Muscat, Oman, sem hún endurtók síðan í janúar 2016 (3:16:01). Í janúar á síðasta ári varð hún í 16 sæti kvenna í Dubai maraþoni á sínum besta tíma 3:08:18 klst sem var besti tími íslenskrar konu á síðasta ári. Fylgdi því svo eftir með því að verða Íslandsmeistari kvenna í RM (3:10:58). Ásta Kristín hefur um nokkurt árabil búið í Oman þar sem hún starfar við dýralækningar og tekist með útsjónarsemi að æfa vel fyrir maraþon og ultra hlaup.

Hægt verður að kjósa til kl. 24 fimmtudaginn 18. janúar 2018. Verðlaunaafhending verður sunnudaginn 21. janúar og tilkynnt verður um niðurstöðu kosningar í kjölfarið á því hér á hlaup.is.

Allir sem kjósa fara í pott og geta unnið hlaupaskó.

Smellið hér til að kjósa langhlaupara ársins (athugið að gefa besta hlaupara 6 stig og svo koll af kolli)

Munið að taka þátt í að velja götuhlaup ársins og utanvegahlaup ársins með því að smella hér og gefa einkunn.

Sjá upplýsingar um alla hlaupara sem koma til greina í valinu.