Átta Íslendingar á HM í utanvegahlaupum í Toscana um helgina

birt 08. júní 2017
Íslenska liðið við brautarskoðun í Toscana.Heimsmeistaramótið í utanvegahlaupum verður ræst klukkan 06:00 að íslenskum tíma á laugardaginn, þann 10. júní. Mótið fer fram í Toscana á Ítalíu að þessu sinni og að sjálfsögðu sendum við Íslendingar lið til keppni. Landslið Íslands er skipað þeim Elísabetu Margeirsdóttur, Þórdísi Jónu Hrafnkelsdóttur, Bryndísi Maríu Davíðsdóttur, Sigríði Einarsdóttur, Kára Steini Karlssyni, Guðna Páli Pálssyni, Daníel Reynissyni og Birgi Sævarssyni.Íslenska liðið hefur dvalið á Ítalíu undanfarna daga við æfingar og m.a. skoðað brautina og hlaupið valda kafla. Ljóst er að íslensku keppendurnir eru til alls líklegir, m.a. hefur Elísabet náð frábærum árangri í alþjóðlegum utanvegahlaupum undanfarin ár.

Þá verður forvitnilegt að fylgjast með Kára Steini sem hefur ekki lagt stund á utanvegahlaup að ráði á sínum ferli en hann hefur eins og alþjóð veit verið fremsti langhlaupari þjóðarinnar undanfarin ár.

Hlaup.is mun fylgjast með gangi mála um helgina og keppast við að upplýsa lesendur um gang mála í Toscana.

Hægt er að fá meiri upplýsingar um hlaupið og fylgjast með því í gegnum eftirfarandi hlekk, https://www.youtube.com/watch?v=S7nho2ZPpNg.

Þá hvetjum við lesendur til að setja „like" við Fésbókarsíðu íslenska liðsins sem má finna undir nafninu Iceland Ultra Trail Running Team. Þar fá lesendur skemmtilega innsýn inn í undirbúning íslenska liðsins og þar verða fréttir eflaust uppfærðar í rauntíma á meðan hlaupi stendur. Hér að neðan má sjá myndbönd af brautarskoðun liðsmanna.