Baldvin og María sigruðu í Gamlárshlaupi ÍR

birt 31. desember 2017

Baldvin Þór Magnússon og María Birkisdóttir komu fyrst í mark í karla- og kvennaflokki í Gamlárshlaupi ÍR sem fram fór í Reykjavík í hádeginu í dag, gamlársdag. Þess má geta að Baldvin er aðeins 18 ára gamall. 1607 hlauparar tóku þátt í hlaupinu sem fór fram 42. skipti.Mikil og góð stemming skapaðist í miðbæ Reykjavíkur og að vanda hlupu margir prúðbúnir í búningum af öllum stærðum og gerðum. Heildarúrslit úr Gamlárshlaupi ÍR munu birtast á hlaup.is eins fljótt og auðið er.Forsvarsmenn hlaup.is vilja nota tækifærið og þakka hlaupurum fyrir samfylgdina á hlaupaárinu sem nú er að líða og um leið hvetja allla til að reima á sig hlaupskóna á nýju ári.

Þrír efstu í karlaflokki:
1. Baldvin Þór Magnússon 00:32:34
2. Bjartmar Örnuson 00:33:09
3. Max Costley 00:33:37

Þrjú efstu í kvennaflokki:
1. María Birkisdóttir 00:37:20
2. Elísabet Margeirsdóttir 00:40:37
3. Agnes Kristjánsdóttir 00:40:47