Birgir til í slaginn við upphaf hlaupsins.Birgir Sævarsson tók þátt í UTMB fjallahlaupi umhverfis Mont Blanc í Frakklandi um síðustu helgi. Hlaupið er 170 km með 10 km hækkun en Birgir var 35 klst og 28 mín á leiðinni. Árangurinn dugði í 228. sæti af tæplega 1500 keppendum.„Þetta var meiriháttar upplifun. Ég hljóp af stað með hlaupara sem var með svipuð markmið og ég og við fylgdumst að fyrstu 5-6 klukkustundirnar. Þá fékk ég aðeins í magann og þurfti að slaka á á einni drykkjarstöð. Næstu klukkutímarnir voru erfiðir en þar var ég í 2000-2500 m hæð og mér hafði ekki gengið vel að koma inn næringu. Ég náði síðan að næra mig á stórri drykkjarstöð, Courmayeur, sem er eftir ca. 80km. Eftir það fór ég í gang og náði að vinna mig jafnt og þétt upp um 400 sæti það sem eftir lifði hlaups," sagði Birgir í samtali við hlaup.is. "Markmiðið var reyndar að vera nær 30 klst. Það var óvenju heitt í hlaupinu en ég var duglegur að kæla mig í lækjum og fannst ég ráða vel við að hlaupa í hitanum. Þegar 50 km voru í mark kom svo úrhellisrigning, þrumur og eldingar. Það er magnað að vera á fjöllum við þær aðstæður."
Þessi frábæri hlaupari var ekki að taka þátt í UTMB í fyrsta skipti og viðurkennir hann að það skipti máli að þekkja leiðina og vera meðvitaður um að í raun „byrji" hlaupið ekki fyrr en eftir 100 km. Aðspurður um hvað sé framundan svarar Birgir að hann muni væntanlega sækja aftur um UTMB og eflaust fleiri hlaup í aðdraganda þess.