Borgaðu minna fyrir þátttöku í Reykjavíkurmaraþoni

birt 01. júlí 2014

Verð í Reykjavíkurmaraþonið hækkar á miðnætti þriðjudaginn 1. júlí. Hlauparar eru hvattir til að að skrá sig fyrir þann tíma og greiða þar með lægra þáttökugjald en ella. 31. Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2014 fer fram í miðbæ Reykjavíkur, laugardaginn 23. ágúst.

Þegar hafa meira heldur en fjögur þúsund hlauparar skráð sig í Reykjavíkurmaraþonið en rétt er að minn á að forskráningu lýkur tveimur dögum fyrir hlaup eða fimmtudaginn 21. ágúst. Allir þeir sem skrá sig í Reykjavíkurmaraþon fyrir 2. júlí eiga möguleika á að vinna skó frá Under Armour, nýjum stryktaraðila Reykjavíkurmaraþons. Tvö skópör verða dregin út miðvikudaginn, 2. júlí.

Skrá sig í hlaupið.