Við viljum vekja athygli á því að að Globeathon og Nauthólshlaupið hafa sameinast undir merkjum þess fyrrnefnda. Globeathonið fer fram 11. september næstkomandi en hlaupaleiðin verður sú sem notast hefur verið í Nauthólshlaupinu undanfarin ár.
Einnig er breyting á tímasetningu Flensborgarhlaupsins. Hlaupið verður 27. september en átti upprunalega að vera 20. september. Vegna landsleiks þann 20. september, var tekin ákvörðun um að færa hlaupið um viku.