Bryndís Svavarsdóttir klárar maraþon í fimmtugasta fylkinu í USA

birt 15. maí 2011

Bryndís Svavarsdóttir hljóp í Delaware maraþoni í dag 15. maí og lauk þar með fimmtugasta maraþoni sem hún hleypur í mismunandi fylkjum í USA. Tími Bryndísar var 5:51:53.

Bryndís á að baki 129 maraþon í heildina.

Með þessu fær Bryndís inngöngu í tvo klúbba, annar þeirra 50statesmarathon-club veitir viðurkenningu fyrir 50 fylkin en hinn 50stateandDCmarathongroupusa hefur Washington DC að auki.

hlaup.is óskar Bryndísi til hamingju með áfangann.

Sjá nánari á bloggsíðu Bryndísar.