Elísabet kom fyrst kvenna í mark eftir 400 km

birt 01. október 2018

Elísabet vel búin í Gobe eyðimörkinni.Elísabet Margeirsdóttur var rétt í þessu að koma í mark í 400 km utanvegahlaupi í Gobe eyðimörkinni í Kína.Þessi stórkostlega ofurkona kom fyrst kvenna í mark í hlaupinu og hafnaði í níunda sæti alls. Elísabet kom í mark á 96 klst og 48 mínútum. Samkvæmt upplýsingum hlaup.is er Elísabet fyrsta konan til að klára Gobe hlaupið á undir 100 klukkustundum. Bara það að sigrast á áskoruninni sem um ræðir er ekkert minna en stórkostlegt en að koma fyrst kvenna í mark og ná á topp tíu í heildina er gjörsamlega magnað afrek.Það er alveg ljóst að með þessum árangri er Elísabet enn frekar að stimpla sig inn sem utanvegahlaupari á hæsta stigi í heiminum.

Ekki stikuð leið
Eins og fjallað var um í frétt á hlaup.is var hlaupaleiðin í eyðimörkinni ansi fjölbreytt, þéttur sandur í bland við grýtt undirlag og allt þar á milli. Þá er hlaupaleiðin ekki merkt, heldur þurftu Elísabet og aðrir keppendur að notast við GPS tækni til að komast leiðar sinnar.

Þá var töluverður hitamunur á milli dags og nætur á hlaupaleiðinni sem er önnur mikil áskorun fyrir hlaupara í svona keppni. Á kafla fraus vatnið í flöskunum sem Elísabet var með á sér auk þess sem hún var klædd í þrennar buxur, ótal lög að ofan, dúnúlpu og góðum jakka yfir. En á daginn var oft á tíðum þægilegt hitastig.

Ofsjónir og þvoglumælgi
Á Fésbókarsíðu Elísabet mátti grannt fylgjast með gangi mála alla leiðina, hlaupurum til mikillar gleði. Þar mátti lesa að Elísabet var í tiltölulega góðum málum alla leiðina ef tekið er mið af aðstæðum. Það er til marks um hversu gríðarleg þrekraun þetta hlaup er að Elísabet var á tímabili farin að sjá ofsjónir og vera þvoglumælt. Slíkt má þó ekki síður skýra af svefnleysi en líkamlegri áreynslu.

Hlaup.is mun á allra næstu dögum birta viðtal við Elísabetu um þetta ótrúlega afrek.

Hér að neðan má sjá myndir sem Elísabet tók á ferðum sínum um Gobe eyðimörkina. Sannarlega fjölbreytt landslag en ekki síður krefjandi.