Erla Gunnarsdóttir þjálfari Skokkhóps Fjölnis fær alþjóðlega viðurkenningu

birt 09. febrúar 2012

Á vef Frjálsíþróttasambandsins kemur fram að Erla Gunnarsdóttir hafi í fyrra hlotið viðurkenningu EAA (European Athletic Association) fyrir einstakt framlag konu til frjálsíþrótta í landinu. Erla hefur leitt starf skokkhóps Umf. Fjölnis því sem næst 20 ár fyrir ánægjuna eina saman.

Fjallað er um Erlu í frétt á heimasíðu EAA.