Ertu á leiðinni í Amsterdam maraþon í haust?

birt 11. mars 2012

Nokkur hópur af Íslendingum ætlar að fara í Amsterdam maraþon í haust, en það fer fram sunnudaginn 21. október. Hægt er að hlaupa heilt maraþon, hálft maraþon og einnig er boðið upp á skemmtiskokk sem er 8 km langt.

Nokkrum erfiðleikum hefur verið bundið að fá hótelherbergi fyrir hópinn vegna stórrar ráðstefnu sem fram fer sömu helgina í Amsterdam en hlaup.is á möguleika á því að fá 15-20 herbergi á sama hótelinu.

Ef þú hefur verið að skoða þátttöku í Amsterdam maraþoninu og hefur áhuga á að vera með öðrum Íslendingum á hóteli, hafðu þá samband við torfi@hlaup.is sem fyrst.