Eru upplýsingar um þinn hlaupahóp réttar?

birt 05. september 2018

Þegar hausta tekur breytist tímatafla hjá mörgum hlaupahópum. Við á hlaup.is höfum áhuga á því að hafa sem bestar og nákvæmastar upplýsingar um starfsemi hlaupahópanna. Það gerist ekki án hjálpar hlaupasamfélagsins. Því biðjum við forsvarsmenn og meðlimi hlaupahópa að fletta upp sínum hlaupahóp á hlaup.is (sjá hér) og yfirfara æfingatíma og upplýsingar um viðkomandi hóp. Allar breytingar skal senda á heimir@hlaup.is.