Eins og þeir sem fylgst hafa með hlaup.is hafa tekið eftir, gátu þeir sem versluðu á hlaup.is fyrir 6.000 kr eða meira í apríl, unnið sér inn Evrópuferð.
Nú hefur verið dregið úr nöfnum þeirra sem versluðu á hlaup.is í apríl fyrir tilskylda upphæð og er sá heppni Jón Sigurðsson, Lækjargötu 34d, 220 Hafnarfjörður. Jón keypti tvenn skópör í verslun hlaup.is núna í apríl.
Það er ekki nóg með að þú styðjir við bakið á vef allra hlaupara með því að versla á hlaup.is, heldur getur þú dottið í lukkupottinn. Fylgstu með, því margt fleira verður í gangi í vor og sumar.