Fáðu forskot fyrir hlaupaveturinn - Næsta hlaupanámskeið hefst 21. september

birt 19. september 2017

Viltu koma þér í gír fyrir hlaupaveturinn? Þá er hlaupanámskeið hlaup.is rétta leiðin. Þar færðu þekkingu og verkfæri til að ná því mesta út úr þeim tíma sem þú eyðir í æfingar. Farið er yfir flestar hliðar hlaupanna út frá ýmsum sjónarhornum. Náðu þér í forskot fyrir hlaupaveturinn og örlítinn innblástur í leiðinni.

Næsta hlaupanámskeið hlaup.is fer fram í Reykjavík fimmtudaginn 21. september, þriðjudaginn 26. september og fimmtudaginn 28. September. Fyrri tveir tímarnir eru í fyrirlestrarformi en sá síðasti er verklegur. Skráning er á hlaup.is. Námskeiðið er í heildina 6,5 tímar. Námskeiðið kostar 13.500 kr.  ATH. Hægt er að fá námskeiðin niðurgreidd hjá sumum stéttarfélögum.

Námskeiðið hentar fyrir alla hlaupara, byrjendur og lengra komna, þar sem farið er yfir helstu atriði í tengslum við hlaupaþjálfun og flest þau atriði sem huga þarf að í tengslum við hlaup. Hlaupanámskeiðin henta vel sem grunnur fyrir byrjendur eða lengra komna sem langar til að fræðast og ná meiri hraða og úthaldi.

Fyrirtækjanámskeið
Viltu fá svona námskeið í þinn hóp eða þitt fyrirtæki? Hafðu samband við hlaup.is og þá er hægt að stilla námskeiðið af tímalega þannig að það henti hópnum eða fyrirtækinu.

Umsagnir frá þátttakendum á hlaupanámskeiðum hlaup.is:

Margrét Elíasdóttir, þjálfari KR-skokk
„Frábært námskeið, virkilega vandað og vel farið yfir allt sem við kemur hlaupum bæði fyrir byrjendur og lengra komna.

Mun nýtast mér mikið í minni þjálfun hjá KR-skokk. Mæli heilshugar með þessu námskeiði fyrir alla hlaupara."

Ívar Trausti Jósafatsson, hlaupaþjálfari hjá Þríkó.
„Ég fór á tveggja kvölda Fræðslunámskeið hjá Torfa á hlaup.is í september 2014. Líkaði virkilega vel og út frá mínu sjónarhorni sem hlaupara og þjálfara sé ég námskeiðið sem ávinning fyrir alla. Farið var yfir alla þætti sem skipta máli í þjálfun, góð upprifjun á ýmsu og margt nýtt lært. Námsefnið hjálpar svo sannarlega í þjálfun."

Agnar Jón Ágústsson, maraþonhlaupari og forsvarsmaður Hlaupahóps Stjörnunnar    
Virkilega vandað, yfirgripsmikið og skemmtilegt námskeið um hlaup hjá Torfa.  Fór á tveggja kvölda námskeið veturinn 2015. Þetta er námskeið sem nýtist öllum hlaupurum, bæði þeim sem hafa reynslu og þekkja vel til, þeim sem eru að byrja og allt þarna á milli.

Efnið er vel sett upp, farið er yfir alla þætti sem skipta máli í hlaupum. Torfi er skemmtilegur fyrirlesari og heldur manni vel við efnið allan tímann og setur hlutina í samhengi. Mæli eindregið með þessu námskeiði hans Torfa.  

Óskar Jakobsson þjálfari hlaupahóps Vals skokk
Mjög fróðlegt og ýtarlegt námskeið hjá Torfa. Var gott að sækja hlaupanámskeiðið til að auka þekkingu mína og einnig til að skerpa á hlutum sem ég átti að vita. Er þegar farinn að nýta mér námskeiðið sem þjálfari.

Torfi fer yfir þætti sem nýtast hlaupurum eins og við val á skóm og fatnaði, undirbúa keppnishlaup,  algengustu meiðsl og hvernig er best að styrkja líkamann til að koma í veg fyrir álagsmeiðsl.  Þetta er námskeið sem allir hlauparar ættu að sækja. Takk fyrir mig!