birt 23. maí 2006

Næstkomandi fimmtudag, Uppstigningardag, standa Fífurnar fyrir þriðja utanvegahlaupinu á þessu ári.

Þá er ráðgert að fara Kongsveginn (gamla Þingvallaveginn), þ.e. frá gámasvæðinu við Heiðabæ, Mosfellsheiði, og sem leið liggur niður í Árbæjarlaug. Leiðin er um 33 km löng og nokkuð þægileg yfirferðar. Lagt verður af stað frá Árbæjarlaug kl. 8:30, þar þarf að sameinast í bíla þar sem þetta er ''point-to-point'' hlaup. Þetta er í fjórða skiptið sem Fífurnar hlaupa þessa leið og óhætt er að mæla með henni við alla sem hafa áhuga á utanvegahlaupum.

Áhugasamir geta hringt í Þórð í síma 893-3756, sjá einnig vef Fífanna. Vonumst til að sjá sem flesta.

Fífurnar.