Kynningarfundir verða haldnir á Akureyri 4. október nk. kl. 20.00 í Átak heilsurækt og í Íþróttahúsinu Kórnum Kópavogi 6. október kl. 12.00.
Dagskrá
- Dave Annandale umsjónarmaður og skipuleggjandi hlaupsins segir frá fyrirkomulagi hlaupsins og undirbúningi fyrir hlaupara.
- Hlauparar frá hlaupinu 2012 segja frá reynslu sinni. Stefán Viðar Sigtryggsson verður á fundinum í Kópavogi, en hann hafnaði í 3ja sæti í hlaupinu í ágúst.
- Kynning á vörum og búnaði fyrir hlaupara.
- Myndir og myndbönd frá hlaupinu sem haldið var frá 24. ágúst - 1. september sl.
- Spurningar og svör.
Allir velkomnir og er aðgangur ókeypis.
Nánari upplýsingar
Dave Annandale +44 7799 114572 netfang, dave@extremeadventurefood.co.uk
Jórunn Jónsdóttir - 691 0009, netfang Jorunn@all-iceland.co.uk