Fjórðu umferð í röð Newton Running og Framfara frestað um viku

birt 17. október 2016

Fjórða hlaupinu í Víðavangshlauparöð Newton Running og Framfara hefur verið frestað um viku eða til 5. nóvember. Hlaupið sem upphaflega átti að fara fram 29. október fer fram við Borgarspítalann.

Hlauparar af öllum stærðum og gerðum eru hvattir til að mæta, en hlaup sem þessi eru virkilega skemmtileg tilbreyting frá hinum hefðbundnu götuhlaupum.

Hringurinn er 1 km að lengd, hæðóttur og á köflum mýrlendur. Mælt er með að hlaupa í gaddaskóm eða utanvegaskóm. Hlaupinn er einn hringur (1000m) í stutta hlaupinu en sex (6 km) í því langa.

Nánar um hlaupið á hlaup.is.