Sigurjón Ernir Sturluson kom fyrstur Íslendinga í mark í TWC hluta HM í utanvegahlaupum sem fram fór í Penyagolosa þjóðgarðinum á Spáni á laugardaginn. TWC hlutinn var 85 km með 5000m hækkun. Sigurjón hljóp á tímanum 11:23:34 og hafnaði í 121. sæti af 350 keppendum. Þess má geta að um 20% keppenda náðu ekki að klára hlaupið.
RöðRásnr.NafnSætiTími13298Sigurjon Ernir STURLUSON - TEAM ICELAND12111:23:3423315Daníel REYNISSON - TEAM ICELAND19012:42:0533122Ragnheidur SVEINBJORNSDOTTIR - TEAM ICELAND23013:29:5543253Gudni Pall PALSSON - TEAM ICELAND24414:10:3853099Thordis HRAFNKELSDÓTTIR - TEAM ICELAND24814:20:4763126Hildur ADALSTEINSDOTTIR - TEAM ICELAND26314:59:2873101Sigridur EINARSDOTTIR - TEAM ICELAND26615:13:43 3074Elisabet MARGEIRSDOTTIR - TEAM ICELANDDNFDNF
Íslensku keppendunum gekk flestum allt í haginn. Elísabet Margeirsdóttir þurfti þó að hætta um miðbik hlaupsins eftir að hafa fengið astmaeinkenni og Guðni Páll Pálsson sýndi eindæma hörku með því að klára þrátt fyrir að hafa fengið krampa snemma hlaups.
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir var fyrst íslensku kvennanna í mark á 13:29:55 á mun betri tími en hún hafði gert ráð fyrir. Hún hafnaði í 86. sæti af 104 konum. Ragnheiður er tiltölulega óreynd á svo stóru sviði, því er árangur hennar einkar glæsilegur en hún kom í mark um 90 mínútum á undan áætlun.
Íslenski hópurinn stóð sig vel á Spáni um helgina.Á Fésbókarsíðu sinni var Sigurjón Ernir að vonum ánægður að hlaupi loknu. "En til að gera langa sögu stutta þá hljóp ég þessa vegalengd mjög þægilega í gegn (var jú að sjálfsögðu erfitt, en leið aldrei eins og ég væri á dánarbeðinu sem gerist oft í svona áskorunum). Frá 5 km týndi ég upp 60-70 hlaupara og var sterkari en allir sem ég tók fram úr þegar kom að brekkunum," segir Sigurjón á fésbókarsíðu sinni.Fleiri utanvegahlauparar á ferðinni um helginaÞess má geta að fleiri Íslendingar tóku þátt í ofurhlaupum um helgina. Birgir Sævarsson hljóp Transvulcania hlaupið á La Palma í Canary eyjaklasanum sem er 74 km (4350 m samanlögð hækkun / 4057 m samanlögð lækkun). Þess má geta að Tranvulcania þykir einkar sterkt hlaup. Birgir hljóp á tímanum 10:54:26 og hafnaði í 196. sæti í heild (183. sæti karla). 1353 kláruðu hlaupið. Frábær árangur hjá Birgi.Þá tók Ægir Sævarsson þátt í100 mílna hlaupinu, Salomon Hammer Trail 2018, sem fram fór á norður hluta Bornholm í Danmörku um helgina.
Hlaupnir voru 6 x 26 km hringir, réttsælis og rangsælis til skiptis auk 4 km "upphitunar" í byrjun (samanlagt 160 km / 100 mílur). Hlaupið fól í sér um 6000 m samanlagða hækkun. Ægir lauk hlaupinu á tímanum 31:27:40 og hafnaði í 11. sæti af 22 sem voru skráðir í hlaupið.
Sannarlega góð helgi hjá íslenskum utanvegahlaupurum um helgina.
Fréttin hefur verið uppfærð.