"Fótbolti og fjallganga besta æfingin" - BARÐSNESHLAUP 2007 - úr kvikmynd í vinnslu

birt 20. ágúst 2008

Hlaup.is hefur fengið leyfi til að birta stutt myndbrot úr væntanlegri kvikmynd Kristins Péturssonar um Barðsneshlaup.

Rætt er við Þorberg Inga Jónsson methafa í Barðsneshlaupinu austur á fjörðum. Hann segir frá leiðinni, undirbúningi sínum fyrir hlaupið og hvernig hann fer að þvi að sigra sér reyndari hlaupara í þessu 27 km fjöru- og fjallahlaupi. Inn á milli sést hópur úr fyrra holli hlaupsins 2007 sigla út í Barðsnes og bíða eftir starti.


(c) Kristinn Pétursson og minervamidlun.is 2008