Fræðslu- og verðlaunakvöld FRAMFARA verður miðvikudaginn 24. mars.
Veitt verða verðlaun fyrir víðavangshlaup FRAMFARA 2009 og Gunnar Páll Jóakimsson greinir frá þjálfararáðstefnum sem hann sótti í vetur í Finnlandi um þolþjálfun unglinga og ráðstefnu British Milers Club í Bretlandi þar sem fjallað var um afreksþjálfun hlaupara.
Fundurinn hefst kl. 19:30 í Fundarsala ÍSÍ, Laugardal.