Framfarir - Viðurkenningar árið 2009

birt 07. febrúar 2010

Síðan árið 2003 hafa Framfarir - hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara veitt árlegar viðurkenningar til kven- og karlhlaupara sem skarað hafa fram úr á árinu. Efnilegasti unglingurinn og mestu framfarirnar hafa einnig verið viðurkenndar og ekki síst Hlaupahópur ársins.

Í ár voru það Kári Steinn Karlsson Breiðabliki og Fríða Rún Þórðardóttir ÍR sem hlutu viðurkenninguna fyrir árangur sinn á liðnu ári. Þetta er þriðja árið í röð sem Kári Steinn er valinn besti hlauparinn og í sjötta sinn sem hann hlýtur viðurkenningu frá Framförum en árin 2004, 2006, 2007 hafði hann sýnt mestu framfarirnar og árið 2005 var hann efnilegastur.

Fríða Rún hlítur þessa viðurkenningu í annað sinn en hún var einnig kjörin besti kvenhlauparinn árið 2007.

Björg Gunnarsdóttir, 800m hlaupari úr ÍR var valin efnilegust og Ólafur Konráð Albertsson ÍR sem hleypur 800m, 1500m, 3000m og 3000m hindrun sýndi mestu framfarirnar. Við samas tilefni voru Framfarastyrkirnir afhentir en það voru þeir Snorri Sigurðsson ÍR og Ólafur Konráð Albertsson ÍR sem voru valdir úr hópi umsækjenda. Hlaupahópur ársins 2009 var öflugur hópur Ísfirðinga sem æft hafa undir öflugri stjórn Mörthu Ernstsdóttur.

Sjá einnig samantekt um fyrri viðurkenningar og upplýsingar um Framfarir.


Kári Steinn Karlsson - Besti hlauparinn


Fríða Rún Þórðadóttir - Besti hlauparinn 2009


Björg Gunnarsdóttir - Efnilegasti hlauparinn