Frestanir á Volcano Trail Run og 1. maí hlaupi UFA

birt 29. apríl 2015

Volcano Trail Run sem átt að fara fram á laugardaginn kemur, þann 2. maí, hefur verið frestað. Hlaupið mun þess í stað fara fram 26. september. Vegna snjóalaga hefði þurft að breyta brautinni til að halda hlaupið um helgina, hlaupahaldarar hafa lifað í voninni um hagfelldara veður en ekki orðið að ósk sinni.

Þá hefur 1. maí hlaupi UFA einnig verið frestað vegna veðurguðanna. Hlaupið mun  fara fram 14. maí, á uppstigningardag.