Laugardaginn 31. október kl. 13:30-15:00 verður haldinn fundur um framkvæmd almennings-, götu-og víðvangshlaupa í Íþróttamiðstöð ÍSÍ (3. hæð) í Laugardal.
Sigurður P. Sigmundsson formaður Almenningshlaupanefndar FRÍ og Þorsteinn Þorsteinsson formaður tækninefndar FRÍ kynna gæðaflokkun götuhlaupa og vottunarreglur Evrópusambandsins (European Athletics) sem fyrirhugað er að innleiða á Íslandi.