Fylgstu með ferð René Kujan þvert yfir landið

birt 23. júní 2014

Hlaupaferð Tékkans René Kujan þvert yfir landið gengur með miklum ágætum. René mun væntanlega ná á Mývatn í dag en upphaflega lagði hann af stað 18. júní frá Gerpi á Austurlandi. René stefnir á að ljúka ferðinni þann 8. júlí á Bjargtöngum.Eins og nærri má geta þá hefur René lent í ýmsu á leið sinni um landið en heilt yfir hefur þó gengið vel, ekki síst fyrir góðmennsku og greiðvikni þeirra sem hafa orðið á vegi Tékkans viðkunnalega.

Hafir þú áhuga á að fylgjast með ferðum René frá degi til dags er hægt að "líka við" fésbókarsíðuna Komasoo. Þess má geta að René hleypur til styrktar Íþróttasambandi fatlaðra og Hollvinum Grensás.

Lestu viðtal hlaup.is við René Kujan sem birtist fyrir skömmu.