Það eru ýmsar leiðir til að hafa yfirsýn yfir hlaup.is og þar með allt sem er að gerast í íslenska hlaupasamfélaginu. Hlaup.is mælir með að hlauparar notfæri sér sem flestar leiðir og séu þannig alltaf meðvitaðir um það sem er framundan hverju sinni.
Á fésbókarsíðu hlaup.is er tenging við flest sem er að gerast í hlaupasamfélagi hverju sinni. Þar birtast úrslit, myndir úr hlaupum og myndbönd, stundum nánast í beinni útsendingu. Auk þess sem þar koma inn áminningar um komandi hlaup, skráningar og fleira. „Like-aðu" hlaup.is á fésbókinni og vertu með á nótunum.
Hlaup.is er einnig með eigin rás á Youtube sem er alltaf í þróun. Stöðin nefnist HlaupTV en þar eru birt viðtöl sem tekin eru við hlaupara við hin ýmsu tækifæri.
Þá heldur hlaup.is einnig út Twitter síðu sem enn er í mótun en að sjálfsögðu er stefnt á að virkja hana sem mest og það sem fyrst.
Að lokum skal nefna tölvupóstlista hlaup.is. Hlauparar geta skráð sig á póstlista hlaup.is og þar með fengið reglulega tölvupóst um allt það helsta sem er framundan í íslenska hlaupasamfélaginu hverju sinni.
Vertu með á nótunum í íslenska hlaupasamfélaginu með hlaup.is.
Fésbókarsíða hlaup.is
Twittersíða hlaup.is
Skráning á póstlista hlaup.is.
Youtube síða hlaup.is