Fyrirkomulag sveitakeppni MÍ í 5 km götuhlaupi

birt 18. apríl 2012

Meistaramót Íslands í 5 km götuhlaupi karla og kvenna fer fram sem hluti af Víðavangshlaupi ÍR á Sumardaginn fyrsta.

Keppt er einnig í 5 manna sveitakeppni karla og 5 manna sveitakeppni kvenna. Fyrirkomulagið er á þá leið að fyrstu fimm karlar í hverri sveit mynda A-sveit viðkomandi félags/hóps og það sama á við um konurnar.

Samanlagður lægsti tími ræður röð sveitanna.