Fylgdarlið Þorbergs Inga Jónssonar hefur sent frá sér hádramatískt myndband um þátttöku hans í UTMB hlaupinu í september síðastliðnum. Þorbergur hafnaði í 32. sæti af 2500 hlaupurum sem hófu keppni, lauk hlaupinu sem er 170 km á 25:57:11. Algjörlega magnaður árangur í hlaupi sem er eitt það sterkasta sinnar tegundar í heiminum.
Þá á enn eftir að minnast á þá erfiðleika sem Þorbergur gekk í gegnum bæði fyrir og á meðan hlaupinu stóð. Sjón er sögu ríkari. Takk fyrir, Rigson Production. Skoða frétt hlaup.is um þáttöku Íslendinga í Mt. Blanc hlaupunum í september.