Jón Eggert Guðmundsson mun ganga um strandvegi Íslands í sumar, en þetta hefur ekki verið gert áður svo vitað sé til. Jón mun uppfæra bloggsíðu um gönguna, sem mun hefjast að alvöru þann 17. júní og ljúka um Verslunarmannahelgina 31. júlí eða 1. ágúst. Jón mun safna áheitum fyrir Krabbameinsfélag Íslands.
Gangan mun byrja í Grindavík þann 17. júní næstkomandi. Bloggsíðan er á eftirfarandi slóð.