birt 30. nóvember 2006

Eitt Íslenskt lið hefur verið samþykkt í Grænlandskeppnina í lok júlí 2007 (http://www.atc.gl/). Þar eru á ferðinni Trausti Valdimarsson, Pétur Helgason og Erlendur Birgisson sem allir eru að fara 3. árið í röð. Nýliði í hópnum er Ásgeir Elíasson sem nýlega lauk 1/2 Ironman vegalengd í Arizona á rúmum 5 klst og er skráður í fullann járnkall í júní 2007.

Skráningin í ATC opnaði 15. nóv en aðeins er pláss fyrir 15 fjögura manna/kvenna lið. Í fyrsta sinn er kvótinn fylltur - og það strax 25. nóv en nokkur lið eru á biðlista, þar á meðal annað lið frá Íslandi.