Grýlupottahlaup Selfoss 2015 hófst laugardaginn 18. apríl síðastliðinn. Þetta í 46. skipti sem hlaupið er haldið. Hlaupin eru sex talsins og fer annað Grýlupottahlaupið fram á morgun. Hvert hlaup eru um það bil 850 metrar og fer fram á íþróttavallasvæðinu við Engjaveg. Tveir og tveir hlaupa saman og er ræst með 10 sekúndna millibili.
Þátttakendur eru á öllum aldri og er aðalatriðið að vera með. Þátttakendur eru aðallega börn þó einstaka foreldar freistist til að taka þátt í fjörinu. Eins og undanfarin ár fer skráning fram í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, og hefst kl. 10.30. Hlaupið er ræst af stað kl. 11.00.
Keppt er í öllum aldursflokkum karla og kvenna. Að loknum sex hlaupum er tekinn saman besti árangur samanlagt úr fjórum hlaupum og veitt verðlaun.
Fyrsta hlaupið er 18. apríl, síðan verður hlaupið 25. apríl, 2. maí, 9. maí, 16. maí og 30. maí.
Verðlaunaafhending verður laugardaginn 6. júní. Grýlupottahlaupið er skemmtilegt tækifæri fyrir fjölskyldur á Selfossi og nágrenni til að koma saman, hreyfa sig og hafa gaman.