Guðlaug Edda Sigurðardóttir er tilnefnd sem langhlaupari ársins 2017 á hlaup.is. Í níunda skiptið stendur hlaup.is fyrir vali á langhlaupara ársins, bæði í karla- og kvennaflokki. Þá er einkum verið að horfa til afreka í götu- og utanvegahlaupum eða annarri keppni í langhlaupum. Afrek er afstætt, getur verið góður tími miðað við aldur, óvenjulegt verkefni, þrautseigja og kjarkur eða hvaðeina sem hægt er að meta til viðurkenningar.
Guðlaug Eddu Hannesdóttur (23 ára) var upprennandi hlaupastjarna í millivegalengdum á árinu 2014 og náði einnig góðum árangri í lengri hlaupum, 38:47 mín í 10 km í RM 2014. Hún lenti síðan í þrálátum meiðslum og fór að byggja sig upp með sundi, enda fyrrum sundkona á landsmælikvarða, og hjólreiðum. Flutti síðan út til Danmerkur fyrir einu og hálfu ári með það fyrir augum að ná góðum árangri í þríþraut. Það hefur tekist en hún tekur þó annað slagið þátt í götuhlaupum með góðum árangri. Varð fyrst íslenskra kvenna í 10 km kvenna í RM á 36:05 mín, sem er besti tími íslenskrar konu í 10 km í RM og stórbætti fyrri árangur.
Hægt verður að kjósa til kl. 24 fimmtudaginn 18. janúar 2018. Verðlaunaafhending verður sunnudaginn 21. janúar og tilkynnt verður um niðurstöðu kosningar í kjölfarið á því hér á hlaup.is.
Allir sem kjósa fara í pott og geta unnið hlaupaskó.
Smellið hér til að kjósa langhlaupara ársins (athugið að gefa besta hlaupara 6 stig og svo koll af kolli)
Munið að taka þátt í að velja götuhlaup ársins og utanvegahlaup ársins með því að smella hér og gefa einkunn.
Sjá upplýsingar um alla hlaupara sem koma til greina í valinu.