Hætt að taka við tilnefningum til langhlaupara ársins 2013

birt 08. janúar 2014

Nú er ekki lengur tekið við tilnefningum um langhlaupara ársins, en hlaup.is þakkar ykkur kærlega fyrir að benda á þá hlaupara sem ykkur finnst koma til greina í vali á langhlaupara ársins. Samtals bárust 142 tilnefningar með 32 nöfnum. Það er nú hlutverk valnefndar að velja út 5 karla og 5 konur sem hlauparar kjósa um. Opnað verður fyrir kosninguna um leið og þetta val hefur farið fram. Langhlaupari ársins verður svo tilkynntur helgina 19-20. janúar ásamt vali ykkar á hlaupi ársins.