Á vef Djúpavogs kemur eftirfarandi fram:
Undirbúningshópur um þríþrautarkeppnina Öxi 2014 hefur ákveðið að hætta við keppnina í ár. Ástæðan er meðal annars sú að á keppnissvæðinu á fjallveginum milli Öxi og Fossárdals er enn töluverður snjór og jarðvegur mjög blautur.
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður í ár er það markmið þeirra sem staðið hafa að þríþrautarkeppninni Öxi að halda keppnina á næsta ári ef aðstæður leyfa. Við þökkum öllum þeim sem sýnt hafa keppninni áhuga og vonandi sjáum við ykkur sem flest að ári.