Haustlitahlaupið - Hljóp 21 km hvorn dag

birt 02. september 2009

Ingólfur Sveinsson læknir og langhlaupari hljóp Haustlitahlaupið við Breiðafjörð bæði á föstudag og laugardag síðastliðinn.

Fyrri daginn hljóp hann frá Vattarnesi að Múla í Kollafirði en seinni daginn innan frá Kollabúðum í Þorskafirði að Reykhólum. Hvor áfanginn var 21 km eða því sem næst hálft maraþon. Seinni daginn hafði Ingólfur félagsskap frá Bjarkalundi því að leiðina þaðan og til Reykhóla hlupu með honum þær Ingibjörg K. Jakobsdóttir og Jóhanna Fríða Dalkvist. Sú vegalengd er nálægt því að vera fjórtán og hálfur kílómetri.

Sjá nánar á vef Reykhólahrepps.