Hefur þú skrifað pistil um Laugavegshlaupið?

birt 23. júlí 2017

Gleðin í fyrrirúmi þegar komið er í mark í Laugavegshlaupinu.Margir hlauparar hafa að undanförnu sett á blað nokkrar línur um þátttöku sína í Laugavegshlaupinu. Sérstaklega hafa slíkar frásagnir verið áberandi á Facebook. Frásagnir af þessu tagi er einkar skemmtilegar og jafnvel gagnlegar fyrir bæði fyrrverandi og verðandi Laugavegshlaupara.Hlaup.is hvetur þá sem hafa skrifað frásagnir um þátttöku í Laugavegshlaupinu til að senda þær jafnvel með myndum á hlaup.is. Frásagnir skal senda á heimir@hlaup.is.Þá minnum við hlaupara á myndasafn hlaup.is úr Laugavegshlaupinu. Hægt er að kaupa myndirnar bæði á tölvutæku formi eða sem útprentað eintak. Hér má finna pötnunarformið.