birt 26. apríl 2007

Stjórn Krabbameinsfélagsins hefur ákveðið að hætta við Heilsuhlaupið í ár. Þetta hefði orðið 20. hlaupið, en þar sem þátttakan hefur undanfarin ár einungis verið í kringum 250-300,  þrátt fyrir oft á tíðum mikla kynningu og góða umgjörð, þá var ákveðið að hætta við hlaupið.