Orðsending frá Öldungaráði FRÍ.
Dagana 22. ágúst til 3. september 2005 fer fram Heimsmeistaramót öldunga (35 ára og eldri) í frjálsum íþróttum í San Sebastian á Spáni. Skráningar þurfa að hafa borist mótshöldurum á Spáni frá FRÍ fyrir 23. maí n.k. Því er nauðsynlegt að skráningar fyrir mótið berist tímanlega, vel fyrir framangreinda dagsetningu. Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við Óskar Thorarensen formann Öldungaráðs FRÍ í s. 662-8337. Heimasíða mótsins er: www.wma-2005.com
Óskar Thorarensen