Boðið verður upp á nokkrar nýjungar í NFR hlaupinu sem fram fer föstudaginn 8. júlí. Hérar verða í hlaupinu og geta aðrir hlauparar sem vilja reyna sig við ákveðna tíma elt þessa héra. Þeir eru eftirfarandi:
- Ívar Adólfsson mun hlaupa á 39,59 mín
- Trausti Valdimarsson mun hlaupa á 42,59 mín
- Ævar Sveinsson mun hlaupa á 44,59 mín.
- ?????? mun hlaupa á 47,59
- Pétur Ísleifsson mun hlaupa á 49,59 mín
Hjólreiðamenn frá Þríþrautafélagi Reykjavíkur verða á undan hlaupurum, en einnig má búast við öðrum nýjungum sem koma í ljós í hlaupinu.