Icelandair hlaupið fer fram 12. maí næstkomandi og af því tilefni hafa hlaupahaldarar gefið út einkar vel heppnað upphitunarmyndband. Þar má m.a. sjá flottar myndir teknar með dróna í síðasta hlaupi. Óhætt er að segja að stemmingin í hlaupasamfélaginu aukist ennfrekar með auknum metnði hlaupahaldara sem m.a. birtist í fjölmörgum myndböndum sem hlauparar geta nú nálgast í aðdraganda eða eftir hin ýmsu hlaup.
Hlaup.is lýsir yfir anægju sinni með þessa þróun og hvetur hlaupahaldara til dáða og vonast eftir áframhaldandi þróun í þessum efnum. Jafnfram minnir hlaup.is á að senda má myndbönd og aðrar ábendingar á heimir@hlaup.is eða torfi@hlaup.is.