Hlaup.is reynir sitt ítrasta til að halda lesendum upplýstum um starfsemi hinna fjölmörgu skokk- og hlaupahópa sem starfa vítt og breitt um landið. Á hlaup.is er að finna yfirlit yfir starfsemi flestra hlaupahópa landsins þ.e. æfingatíma, þjálfara, æfingastaði o.s.frv. Mikið af upplýsingunum eru komnar til ára sinna og þarfnast uppfærslu. Því biðlum við til forsvarsmanna hlaupahópa landsins að glugga í upplýsingar um sinn hóp og senda okkur í kjölfarið uppfærðar upplýsingar.
Hér má finna yfirlit yfir skokk-hlaupahópa landsins.
Allar upplýsingar skal senda á heimir@hlaup.is.