Hjóla- og göngustígar verða lagðir í Reykjavík fyrir hálfan milljarð árið 2014. Þetta eru einkar góð tíðindi fyrir hjólandi og ekki síður hlaupandi og eykur þar af leiðandi öryggi allra, óháð ferðamáta. Bæði er um að nýja stíga og endurbætur á gömlum með áherslu á að aðskilja gangandi og hjólandi. Sem dæmi má nefna nýja hjólastíga í Öskjuhlíð frá Flugvallarvegi að HR auk þess sem samhliða göngustígur sem er sívinsæll meðal hlaupara verður lagfærður.
Einnig er von á byltingu í gerð hjóla- og göngustíga í útivistarparadísinni Elliðaárdal. Á fundi borgarráðs í gær, fimmtudag var gefinn heimild til að hefja undirbúning og hönnun vegna göngu- og hjólastíga í Elliðárdal, auk brúar yfir Elliðaár við Rafstöð. Töluverðu fjármagni verður veitt til verkefnsins á þessu ári og vonandi verður það að veruleika í náinni framtíð.
Nánari upplýsingar má fá á vef Reykjavíkurborgar.
Hér má sjá yfirlitskort af framkvæmdum ársins sem birtist á vef Reykjavíkurborgar.