Nú hafa verið birtar einkunnir fyrir öll hlaup ársins 2012 og niðurstaða liggur fyrir.
Það eru Snæfellsjökulshlaupið og Mt. Esja Ultra sem deila efsta sætinu að þessu sinni í vali allra hlaupara á hlaupi ársins.
Þessi hlaup fá hæstu einkunn hlaupara og eru því að sönnu hlaup ársins 2012. Snæfellsjökulshlaupið var haldið í fyrsta sinn árið 2011 og Mt. Esja Ultra var haldið í fyrsta skipti árið 2012 og það er augljóst að hlauparar kunna vel að meta þessi nýju og spennandi hlaup. Ekki langt undan eru hlaup eins og Vesturgatan sem alltaf er mjög vinsæl meðal hlaupara, Barðsneshlaupið og Gullspretturinn sem alltaf er vinsæll.
Fjölmörg önnur hlaup eru að fá góðar einkunnir og virðist framkvæmd hlaupanna yfirleitt vera í góðu standi.