Hlaupa- og skemmtiferð til Ekvador 11.- 22. júní

birt 08. febrúar 2007

Nokkrir hlauparar úr ÍR- SKOKK hafa ákveðið að stefna á hlaupa- og skemmtiferð í Ekvador 11. til 22. júní í sumar. Þetta er ferð sem er öllum opin og skipulögð hjá ferðaskrifstofu sem ÍR-ingar hafa reynsla af. Hún er hugsuð eins og um venjulega útivistar- eða gönguferð sé að ræða, nema þarna er gist á hótelum og eru dagleiðirnar hlaupnar. Farið verður um mjög áhugaverða staði í Andesfjöllum og lögð áhersla bæði á náttúru og mannlíf.

Hafið samband við Gauta Höskuldsson ef þið hafið áhuga á að slást í hópinn.

Nánari upplýsingar um þessa er hægt að fá á netinu.