Hlaupahópar ath! Eru upplýsingarnar réttar?

birt 18. nóvember 2016

Árbæjarskokkarar litríkir á góðviðrisdegi.Á hlaup.is má finna upplýsingar um langflesta starfandi hlaupahópa á Íslandi. Í sumum tilfellum þarf hinsvegar að uppfæra upplýsingar um starfsemi hópanna, æfingatíma, æfingastað og fleira í þeim dúr.Kæru meðlimir hlaupahópa, við á hlaup.is viljum biðja ykkur um að yfirfara upplýsingar um hópinn ykkar og senda leiðréttingar ef einhverjar eru. Að sjálfsögðu hvetjum við sérstaklega nýja hópa til að taka saman upplýsingar og senda okkur.Það er okkur á hlaup.is mjög mikilvægt að upplýsingar um starfsemi hlaupahópa séu sem bestar á hverjum tíma enda er starfsemi hlaupahópa einn af hornsteinum íslenska hlaupasamfélagsins.

Hér má finna upplýsingar um hlaupahópinn þinn

Ábendingar skal senda á heimir@hlaup.is.