Hlaupaleikfimi, mælingar og styrktarþjálfun fyrir hlaupara

birt 25. ágúst 2017

Sjúkraþjálfun Reykjavíkur heldur námskeið fyrir hlaupara í styrktar-, stöðugleika- og liðleikaþjálfun sem sérhæfð er fyrir langhlaupara og hefur verið þróuð af Gauta Grétarssyni sjúkraþjálfara. Námskeiðin eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 7.30 - 8.30.

Námskeiðin hefjast mánudaginn 4. september 2017.

Hvort námskeið er 1 x í viku, á mánudögum eða miðvikudögum kl. 7:30-8:30. Innifalið í námskeiðinu er mjólkursýrumæling, fræðsla og leiðbeiningar um þjálfun langhlaupara. Einnig er hægt að vera í tímum 2 x í viku.

Styrktar- og liðleikaþjálfunin eykur líkamsstyrk hlaupara, bætir hlaupalag og er ein leið til að koma í veg fyrir álagsmeiðsli og er því ein leið til að bæta hlaupatíma. Umsjón með námskeiðunum eru Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari og Hildigunnur Hilmarsdóttir íþróttakennari sem er sérfræðingur í mjólkursýrumælingum og mati á líkamlegri afkastagetu.

Verð fyrir námskeiðið er 27 þúsund krónur á önn.

Styrktar - og mjólkursýrumælingar fyrir hlaupara
Sjúkraþjálfun Reykjavíkur hefur boðið upp á mjólkursýrumælingar, kraftmælingar og hlaupagreiningar fyrir langhlaupara undanfarin ár til að þeir geti fylgst með líkamsástandi sínu og gert áætlanir um þjálfun sína. Mælingar þessar eru ein af forsendum þess að hlauparar viti hvar þeir standa og einnig mikilvæg leið til að koma í veg fyrir meiðsli sem hrjá marga hlaupara.

Einnig hafa sjúkraþjálfarar Sjúkraþjálfunar Reykjavíkur meðhöndlað hundruð langhlaupara sem hafa lent í álagsmeiðslum, ofþjálfun og áverkum tengdum hlaupaþjálfun.

Námskeiðin eru haldin í nýjum húsakynnum Sjúkraþjálfunar Reykjavíkur að Fiskislóð 1 ( Húsi Ellingsen, 2 hæð. Hægt er að fá frekari upplýsingar og skrá sig á netfangið gauti@srg.is.