Mynduð hefur verið hlauparöð nokkurra utanvegahlaupa og 66° Norðurs fyrirtækisins, þar sem 66° Norður mun vera einn af styrktaraðilum hlaupanna. Í töflunni sést hvaða utanvegahlaup það eru sem koma til með að mynda þessa seríu.
HVENÆR | HVAÐA HLAUP | VEGALENGD |
5. júní | Úlfljótsvatn | 25 KM |
3. júlí | Þorvaldsdalur | 25 KM |
18. júlí | Vesturgatan | 24 KM (12 KM) |
24. júlí | Jökulsárhlaup | 32 KM (21 KM, 13KM) |
31. júlí | Barðsnes | 27 KM (13 KM) |
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir 3 efstu sæti karla og kvenna í hverju hlaupi. Einnig verða veitt stigaverðlaun fyrir flest stig samanlagt í hlaupunum fimm.
Skráning fer fram á hér á hlaup.is.
Vinningar í öllum hlaupunum
Verðlaun fyrir karla og konur
- 1. sæti: La Sportiva Crosslite hlaupaskór
- 2. sæti: Grettir hlaupabuxur og Vík hanskar
- 3. sæti: Árskort í Bláa Lónið
Útdráttarverðlaun
Í lok hlauparaðarinnar verða dregin út glæsileg verðlaun. Hlauparar fara jafnoft í pottinn og þeir taka þátt. Sá sem tekur þátt í öllum hlaupunum fer 5 sinnum í pottinn og á mestu möguleikana á vinning. Til að komast í pottinn þarf hlaupari að taka þátt í lengstu vegalengdum hvers hlaups, sé um fleiri en eina að ræða.
1. Flugferð
2. Vík peysa og hanskar
3. Básar ullarbolur og buxur
La Sportiva Crosslite hlaupaskór
Hentar frábærlega fyrir hlaup á fjöllum og heiðum. Ytra byrði er gert úr léttu netefni og andar vel; fóðrið er gert úr stömu efni.
Grettir hlaupabuxur
Grettir hlaupabuxurnar eru mjög þægilegar hlaupabuxur úr Cocona® efni.
Sérmótuð hné til þess að hámarka hreyfigetu.
Vík hanskar
Þunnir og þægilegir hanskar úr Power Stretch®.
Góðir hvort tveggja einir og sér eða þá undir aðra hanska.
Vík peysa
Létt aðsniðin peysa úr Polartec® Power Stretch® efni. Teygist á fjóra vegu, þornar fljótt auk þess að anda vel.
Básar ullarbolur
Hlýr og léttur ullarbolur úr 100% Merino ull.