Hlaupaþjálfara vantar fyrir hlaupahóp Hress

birt 08. mars 2009

Líkamsræktarstöðin Hress í Hafnarfirði (sjá hress.is) óskar eftir að ráða þjálfara fyrir hlaupahóp Hress. Hópurinn mun hittast þrisvar í viku, líklegast á mánudögum, miðvikudögum og laugardögum. Um er að ræða ágætlega launað aukastarf.

Æskilegt er að umsækjandi hafi marktæka reynslu af þátttöku í hlaupum, sé íþróttakennari (ekki skilyrði) og helst einhverja reynslu af því að leiðbeina eða þjálfa.

Umsækjendur sendi nánari upplýsingar á netfangið torfi@hlaup.is, þar sem einnig er hægt að fá nánari upplýsingar.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er til 11. mars.